Refund policy

AFHENDINGAR- OG SKILASTEFNA

Framleiðsla eftir pöntun

Til að draga úr sóun og of framleiðslu eru vörur framleiddar þegar pöntun hefur verið staðfest.

Þetta þýðir að framleiðsla getur tekið nokkra daga áður en vara er send.

Afhending

Afhendingartími er mismunandi eftir staðsetningu kaupanda.

Áætlaður afhendingartími birtist við kaup þegar mögulegt er.

Athugið að tafir hjá flutningsaðilum, tollafgreiðslu eða vegna veðurs geta komið upp.

Breytingar og afpantanir

Vegna þess að framleiðsla hefst fljótlega eftir pöntun er ekki alltaf hægt að breyta eða hætta við pöntun eftir að hún hefur verið staðfest.

Skil

Ef vara er gölluð eða röng verður hún endurgreidd eða skipt út án kostnaðar fyrir kaupanda.

Réttur til að falla frá samningi: Þú hefur rétt til að falla frá þessum samningi innan 14 daga frá því að þú fékst vöruna afhenta. Frestur til að skila vörunni til okkar aftur rennur út 14 dögum eftir þann dag. Til þess að nýta réttinn þarft þú að tilkynna okkur ákvörðun þína með ótvíræðri yfirlýsingu á tölvupóstfangið tilfinning@unnthorsdottir.is .

Nota má meðfylgjandi staðlað eyðublað, en það er ekki skylda. Til að fresturinn teljist virtur nægir þér að senda tilkynningu um að þú neytir réttar þíns til að falla frá samningi áður en fresturinn rennur út.


Endurgreiðslur

Samþykktar endurgreiðslur eru framkvæmdar með sama greiðslumáta og notaður var við kaup þegar því verður við komið.
Ef þú fellur frá þessum samningi munum við endurgreiða þér allar greiðslur sem við höfum fengið frá þér, þ.m.t. afhendingarkostnað (að undanskildum viðbótarkostnaði ef þú valdir annan afhendingarmáta en ódýrasta staðlaða afhendingarmáta sem við bjóðum). Endurgreiðsla fer fram án ástæðulausrar tafar og ekki síðar en 14 dögum eftir að okkur berst varan til baka. Þú þarft ekki að bera neinn kostnað af þessari endurgreiðslu.

Tollar og gjöld

Kaupendur utan Íslands bera ábyrgð á tollum, sköttum og öðrum innflutningsgjöldum sem kunna að leggjast á sendinguna.